Ríkisstjórnin hefur ákveðið að veita alls 100 milljónum króna árið 2008 til eflingar atvinnuþróunar og nýsköpunar vegna skerðingar þorskaflaheimilda

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að veita alls 100 milljónum króna árið 2008 til eflingar atvinnuþróunar og nýsköpunar á þeim svæðum sem verða fyrir aflasamdrætti vegna skerðingar þorskaflaheimilda.  Styrkhæf svæði eru sveitarfélög og eyjar þar sem hlutfall starfa í veiðum og vinnslu er 10% eða hærra. 

Áformað er að í fjárlögum ársins 2009 verði 100 milljónir sem verður ráðstafað á sama hátt.  Auglýst er eftir umsóknum um stuðning við verkefni á viðkomandi svæðum.  Umsækjendur geta verið sveitarfélög, fyrirtæki og einstaklingar.  Hámarksstyrkur er 8 milljónir króna, þó aldrei hærri en 50% af viðurkenndum heildarkostnaði verkefnisins.  Hámarks hlutafé er 8 milljónir króna, þó að hámarki 50% af heildarhlutafé. 

Styrkir verða veittir til: Stofnkostnaðar annars en kaupa/byggingar húsnæðis, véla og tækja.  Þróunarkostnaðar á vöru og/eða þjónustu Markaðssetningar á vöru og/eða þjónustu.