Grundarfjarðarbær stendur fyrir ljósmyndasamkeppni í sumar. Vegleg verðlaun eru í boði fyrir bestu myndirnar. Samkeppnin stendur frá 2. maí til 31. ágúst og verða myndirnar að vera teknar á því tímabili og innan sveitarfélagsmarka. Hver þátttakandi má senda inn tíu myndir. Afraksturinn verður svo til sýnis á veglegri sýningu á næstu Rökkurdögum. Þemað í samkeppninni er sumar.

Nánari upplýsingar veitir markaðsfulltrúi Grundarfjarðarbæjar (899-1930 / jonas@grundarfjordur.is)