Meðfylgjandi myndir tók Tómas Freyr Kristánsson af krökkum og kennurum í grunnskólanum við síldartínslu á þriðjudag.

Fram hefur komið að krakkarnir hafi tínt nákvæmlega 27.515 kg. Án efa verður þetta þeim eftirminnilegur dagur enda tókst þetta í alla staði frábærlega.

Þið stóðuð ykkur framúrskarandi vel. Bestu þakkir fyrir.

Í gær og í dag hafa svo fleiri komið og tínt upp síld. M.a. krakkar úr grunnskólanum í Stykkishólmi, frá UMFG og Víkingi. Á morgun koma svo krakkar úr grunnskólanum í Snæfellsbæ.