Vikuna 21.-26. júlí verður Anna Rún Tryggvadóttir, myndlistarkona með námskeið fyrir börn. Anna Rún hefur kennt börnum í Myndlistarskólanum í Reykjavík og fyrir Listasafn Íslands. Verður umhverfi og náttúra Grundarfjarðar skoðuð og henni gerð skil í teikningum með kolum og blýanti sem og fleiri aðferðum. Áhugasamir

skrái sig á jonas@grundarfjordur.is. Námskeiðsgjald er 4000 kr. og athugið að aðeins 8 börn komast að. Kennt verður frá 9-12. Námskeiðið endar á sýningu.

Anna Rún Tryggvadóttir veitir nánari upplýsingar í síma 690 5105.