Brautargengi í Borgarnesi

Námskeið fyrir konur um stofnun og rekstur fyrirtækja

 

Impra nýsköpunarmiðstöð gengst nú í þrettánda sinn fyrir svokölluðum Brautargengisnámskeiðum á landsbyggðinni. Haustið 2009 er áætlað að halda námskeiðið á tveimur stöðum á landinu, þ.e. í Borgarnesi og Akureyri. Alls hafa yfir sjö hundrað konur víðs vegar um land lokið Brautargengisnámskeiði frá upphafi.

Brautargengi er 75 kennslustunda námskeið um stofnun og rekstur fyrirtækja. Meðal markmiða námskeiðsins eru að nemendur öðlist hagnýta þekkingu á þáttum er lúta að stofnun og rekstri fyrirtækja, markaðsmálum, fjármálum og stjórnun. Einnig öðlast nemendur tengsl við atvinnulífið í gegnum fyrirlesara, leiðbeinendur og aðra þátttakendur. Kennsla mun að þessu sinni fara fram á stöðunum þremur auk þess sem þátttakendur hitta aðra hópa tvisvar á námskeiðstímanum.  Lögð verður áhersla á að kennarar hafi reynslu og þekkingu af atvinnulífinu og miðli hagnýtri þekkingu til nemenda.  Þátttakendur fá einnig handleiðslu hjá starfsmönnum Impru og samstarfsaðila á milli kennslustunda.

Fyrir hverja er Brautargengi?

Brautargengi er sérsniðið námskeið fyrir athafnakonur sem hafa viðskiptahugmynd sem þær vilja hrinda í framkvæmd með nýju eða starfandi fyrirtæki. Eina inntökuskilyrðið er að þátttakendur hafi viðskiptahugmynd til að vinna með á meðan námskeiðinu stendur.

Skipulag námskeiðsins

Námskeiðið hefst um miðjan september og er kennt einu sinni í viku frá fram í desember en þá lýkur námskeiðinu með formlegri útskrift. Boðið verður upp á vinnusmiðjur utan hefðbundinna kennslustunda þar sem þátttakendum gefst tækifæri á að vinna að gerð viðskiptaáætlunar undir handleiðslu leiðbeinanda.

Námskeiðið í Borgarnesi er samstarfsverkefni Impru og Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi.

Reynsla annarra

Boðið hefur verið upp á Brautargengisnámskeið reglulega í Reykjavík síðan 1996 en á árinu 2003 var í fyrsta sinn boðið upp á námskeiðið á landsbyggðinni en aðkoma sveitarfélaga hafa gert það að verkum að unnt er að halda námskeiðin reglulega víða um land. Uppbygging námsins á landsbyggðinni er sú sama og á höfuðborgarsvæðinu.  Yfir sjö hundrað konur hafa lokið Brautargengisnámi frá upphafi, þar af um 240 á landsbyggðinni. Kannanir sem gerðar hafa verið um árangur námskeiðanna sýna að um helmingur kvenna sem tekið hafa þátt í námskeiðinu frá upphafi nú með fyrirtæki í rekstri. Flest fyrirtækjanna eru með einn til tvo starfsmenn, en meðalfjöldi starfsmanna er níu.  Eftirgrennslan hefur ennfremur leitt í ljós að einungis ein af hverjum 10 konum hefur alfarið lagt á hilluna öll áform um fyrirtækjarekstur. Þó ekki hafi allar hafið rekstur eru margar enn að vinna að undirbúningi sinna viðskiptahugmynda. 

Frekari upplýsingar

Námskeiðið er í umsjón Selmu Daggar Sigurjónsdóttur, verkefnisstjóra hjá Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Námskeiðsgjald er 40.000,- kr. á hvern nemenda, en algengt er að stéttarfélög hafi tekið þátt í greiðslu námskeiðskostnaðar. Umsóknareyðublöð og frekari upplýsingar má finna á vefsíðu Impru en einnig er hægt að hafa samband við verkefnisstjóra með tölvupósti (selma@nmi.is) eða hringja í síma 460 7975.

 

 

Kær kveðja 

Svava Svavarsdóttir - skrifstofustjóri Símenntunarmiðstöðvar á Vesturlandi

www.simenntun.is

Sími 437-2390