Námskeið fyrir verðandi heimsóknarvini verður haldið á vegum Rauða krossins í Grundarfirði, fimmtudaginn 10. mars, frá klukkan 13.00 til 16.00 í safnaðarheimilinu. Námskeiðið er frítt og boðið verður upp á kaffiveitingar.

Áhugasamir eru hvattir til að koma og hlusta, hvort sem þeir hugsa sér að verða heimsóknarvinir eða þiggja heimsóknir.