Grunnskóla Grundarfjarðar var slitið í síðustu viku og voru við það tækifæri sextán nemendur útskrifaðir frá skólanum við hátíðlega stund. Nemendur tíunda bekkjar voru kvaddir með blómum og ræðum auk þess sem viðurkenningar voru veittar til þeirra sem sköruðu fram úr á hinum ýmsu sviðum.

Þessu glæsilega unga fólki eru færðar kveðjur og hamingjuóskir frá Grundarfjarðarbæ og megi þeim farnast vel um alla framtíð.