Álit og þekking íbúa á umhverfis- og samfélagsmálum er mikilvægur hluti af umbótum í ýmsum málaflokkum og bættri frammistöðu sveitarfélaga. Rafræn skoðanakönnun um umhverfi og samfélag var birt á vefsíðum sveitarfélaganna og umhverfisvottunarverkefnisins 1. desember 2020 og stóð hún til 17. desember 2020. Skýrslu með niðurstöðunum er hægt að nálgast í heild sinni hér. Þetta var önnur skoðanakönnunin á vegum umhverfisvottunarverkefnis Snæfellsness en sú fyrri var send út í árslok 2012.

Í könnuninni var farið yfir bakgrunnsupplýsingar þátttakenda, þeir spurðir út í þekkingu og álit á umhverfisvottunarverkefninu og beðnir um álit á mikilvægi mismunandi þátta í umhverfis- og samfélagsmálum. Að auki voru möguleikar á opnum svörum þar sem íbúum gafst tækifæri til að tjá sig um ýmis mál.

Stefnt er að því að leggja könnun sem þessa fyrir íbúa Snæfellsness reglulega næstu ár. Niðurstöðurnar endurspegla að sjálfsögðu ekki álit samfélagsins í heild, en þær gefa stjórnendum sveitarfélaganna hugmynd um hvar úrbóta er þörf. Umhverfisvottunarverkefnið mun á næstu árum nýta þessi gögn við verkefnaval í framkvæmdaáætlun, val á fræðsluefni og við upplýsingagjöf. Þessari könnun fylgir einnig lærdómur sem við tökum með okkur í gerð þeirrar næstu.

Áhugasöm eru hvött til að kynna sér niðurstöðurnar. Allar ábendingar og spurningar eru vel þegnar á gudrun@nsv.is

Sjá nánar í frétt á vef Umhverfisvottunar Snæfellsness