Nótan – uppskeruhátíð tónlistarskólanna 2026

Svæðistónleikar Nótunnar – uppskeruhátíð tónlistarskólanna fyrir vesturland og vestfirði fór fram í félagsheimili Patreksfjarðar í Vesturbyggð laugardaginn 18.apríl sl. Hátíðin var hin glæsilegasta og voru atriðin mjög fjölbreytt og skemmtileg. Um 100 nemendur frá 8 tónlistarskólum tóku þátt í tónleikunum, frá Akranesi, Bolungavík, Borgarfirði, Grundarfirði, Ísafirði, Snæfellsbæ, Stykkishólmi og Vesturbyggð.

Frá Tónlistarskóla Grundarfjarðar fór skólahljómsveitin okkar, þau Ari, Aron, Einir Hugi, Hans Bjarni, Kjartan og Mýrún auk þess fengum við Hákon bassaleikara að láni frá Tónlistarskóla Stykkishólms. Þau spiluðu lag Bubba Morthens Fallegur Dagur og átti það svo sannarlega vel við þennan fagra dag þar sem veðrið sýndi sínar bestu hliðar og skartaði fjörðurinn sínu fegursta. Krakkarnir stóðu sig frábærlega og voru sér og skólanum okkar til mikils sóma, bæði á sviðinu og utan þess.