- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Sjálfbærnistefna Snæfellsness - vefútgáfa
Sjálfbærnistefna Snæfellsness - PDF útgáfa
Á Snæfellsnesi hefur verið samþykkt ný og uppfærð sjálfbærnistefna sem markar næsta skref í sameiginlegri vegferð sveitarfélaganna í loftslags- og umhverfismálum. Stefnan byggir á þeirri vinnu sem þegar hefur átt sér stað á svæðinu, en felur í sér skýrari og markvissari markmiðasetningu – sérstaklega þegar kemur að beinni losun gróðurhúsalofttegunda vegna starfsemi sveitarfélaganna sjálfra.
Með stefnunni uppfylla sveitarfélögin hlutverk sitt samkvæmt lögum nr. 70/2012 um loftslagsmál, auk þess að styðja við markmið EarthCheck-vottunar Snæfellsness og aðrar skuldbindingar í sjálfbærnimálum. Áhersla er lögð á ábyrgð, gagnsæi og mælanlegan árangur, þar sem sett eru fram markmið og skilgreindar aðgerðir til að ná þeim.
Stefnan er sameiginleg fyrir sveitarfélögin á Snæfellsnesi og endurspeglar sameiginlega sýn um ábyrga auðlindanýtingu og sterkt, sjálfbært samfélag. Samhliða stefnunni fylgja aðgerðaáætlanir, eins og lög kveða á um. Þær eru á ábyrgð hvers og eins sveitarfélags og fela í sér aðgerðir sem styðja við markmið stefnunnar.
Fram til þessa hefur reynst áskorun hér á landi og um heim allan að innlima áhrifaríkar aðgerðir í loftslagsmálum inn í starfsemi ríkja og sveitarfélaga. Með þessari nálgun er vonast til að stigin verði markviss skref fram á við á sveitarfélagastiginu, því nú er ekki aðeins horft til framtíðar heldur einnig til daglegrar starfsemi og ákvarðanatöku innan stjórnsýslunnar. Sjálfbærni er þannig fléttuð inn í rekstur, innkaup, skipulag og þjónustu við íbúa.
Við hvetjum íbúa, samstarfsaðila og aðra áhugasama til að kynna sér nýju sjálfbærnistefnuna nánar. Með samstilltu átaki getum við haldið áfram að styrkja Snæfellsnes sem fyrirmyndarsvæði í sjálfbærni.
Frekari upplýsingar um Umhverfisvottun Snæfellsness - EarthCheck má finna hér.