Tveir nýir starfsmenn hafa verið ráðnir í ný störf hjá Grundarfjarðarbæ. 

Annars vegar er um að ræða umsjónarmann fasteigna og hins vegar aðalbókara/ritara á bæjarskrifstofu. 

Umsjónarmaður fasteigna er Gunnar Pétur Gunnarsson vélfræðingur og rafeindavirki. Hann mun taka til starfa um miðjan ágúst.

Aðalbókari/ritari á bæjarskrifstofu er Helga Hjálmrós Bjarnadóttir viðskiptafræðingur. Hún hefur þegar hafið störf.

Þau Gunnar og Helga eru boðin velkomin til starfa hjá Grundarfjarðarbæ!