Á fundi bæjarstjórnar í gær  var ákveðið að ráða Björn Steinar Pálmason í starf bæjarstjóra. 

Björn Steinar er Grundfirðingum að góðu kunnur, en hann starfaði sem skrifstofustjóri Grundarfjarðarbæjar í fjögur ár, frá 2003 – 2007 og var þá jafnframt staðgengill bæjarstjóra.  Björn Steinar er viðskiptafræðingur og sagnfræðingur að mennt, með alþjóðlega vottun í verkefnastjórnun.  Hann gegnir stöðu sérfræðings í  innri endurskoðun hjá Byr Sparisjóði.  Eiginkona hans er Johanna Elizabeth Van Schalkwyk og munu þau ásamt tveimur dætrum flytja til Grundarfjarðar fljótlega, en væntanlega skýrist á næstu dögum hvenær Björn Steinar getur hafið störf.