Fjöldi manns var mættur á stóru bryggjuna í Grundarfirði fyrir birtingu um kl. 10 á gamlársdagsmorgun þegar Hringur SH 153 nýtt togskip Guðmundar Runólfssonar hf. renndi upp að bryggjukantinum. Þar sem það var gamlársdagur þótti tilhlýðilegt að taka á móti því með flugeldasýningu.

 

Gunnar Kristjánsson fréttaritari Morgunblaðsins í Grundarfirði ritaði þessa frétt á mbl.is 31.12.2005.

 

Landfestar gerðar klárar við fyrstu komu í heimahöfn. Ljósm. Gunnar Kr.

Þegar búið var að binda skipið ávarpaði Guðmundur Smári Guðmundsson framkvæmdastjóri þá sem mættir voru en að því búnu sendi María systir hans kampavínsflösku á stefni skipsins til staðfestingar nafninu en séra Elínborg Sturludóttir blessaði skipið og árnaði heilla. Að því búnu var öllum viðstöddum boðið um borð til að skoða skipið.

Hringur er keyptur frá Fraserburgh í Skotlandi. Skipið er smíðað 1999 og er 29 metra langt og 9,5 metra breitt. Skipið mun koma í stað Hrings SH 535, sem fyrirtækið hefur gert út í níu ár en fer nú í úreldingu.

Eigendur segja að þetta sé öflugt togskip, en sé engu að síður hagkvæmt í útgerð sem sé nauðsynlegt til að geta búið við hið háa olíuverð. Áður en skipið kom til Íslands fóru fram breytingar og viðgerðir á því í Póllandi. Kostnaður við kaupin og breytingarnar er um tvö hundruð milljónir króna. Fyrirtækið gerir einnig út togbátinn Helga og verður hann í útgerð áfram. Skipstjóri á Hring verður Ingimar Hinrik Reynisson og heldur það til veiða strax eftir áramót.

10 manns eru í áhöfn skipsins.