Frá áramótum verður tekinn upp nýr opnunartími á bæjarskrifstofunni. Opið verður virka daga frá kl. 10-14.

Hingað til hefur verið opið frá 9:30-15:30 mánudaga til fimmtudaga og frá 9:30-14 á föstudögum.

Breytingin tekur mið af þróun undanfarinna ára í þá átt fólk eigi frekar í rafrænum samskiptum við stjórnsýsluna frekar en að koma í eigin persónu til að reka erindi sín.

Bæjarskrifstofan verður opin samkvæmt venju 27.-30. desember, kl. 9:30-15:30 en opnar á nýjum tíma þriðjudaginn 4. janúar. Frá þeim degi verður opið kl. 10-14 mánudaga-föstudaga.