Gunnar Sigurgeir Ragnarsson hefur verið ráðinn sem skipulags- og byggingafulltrúi Grundarfjarðarbæjar. Gunnar er húsasmíðameistari og  menntaður byggingarfræðingur B.Sc. frá Vitursbering Horsens í Danmörku.

Eiginkona hans er Sigrún Baldursdóttir hársnyrtimeistari og eiga þau tvö börn saman.

Gunnar er boðinn velkominn til starfa í Grundarfirði, en ráðgert er að hann komi til starfa að fullu eftir 2-3 vikur.