1. september síðastliðinn tók gildi nýr útivistartími fyrir börn og unglinga eftir lengri útivistartíma í sumar.

 

Börn, 12 ára og yngri, mega ekki vera á almannafæri eftir kl. 20:00 nema í fylgd með fullorðnum.

 

Börn, 13 til 16 ára, skulu að sama skapi ekki vera á almannafæri eftir kl. 22:00, enda séu þau ekki á heimferð frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu.

 

Aldurstakmörkin miðast við fæðingarár.

 

Mikilvægt er að foreldrar og forráðamenn  sýni samstöðu og  gæti þess að börn þeirra virði útivistartímann.