- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Nýtt eldhús hefur verið tekið í notkun í Grunnskóla Grundarfjarðar
Nýtt eldhús í grunnskólanum hefur nú verið tekið í notkun eftir framkvæmdir undanfarin misseri. Þar með færist matargerð fyrir nemendur grunn- og leikskóla inn í skólahúsið, en áður var maturinn eldaður í eldhúsi leikskólans.
Guðbrandur Gunnar Garðarson, matreiðslumaður, og Bryndís Guðmundsdóttir sjá um matargerðina og hafa nú tekið til starfa í nýja eldhúsinu.
Eldhúsið er búið helstu tækjum og búnaði sem þarf til að elda hollan og góðan mat frá grunni fyrir börn í grunn- og leikskóla.
Nýja eldhúsið er nú komið í notkun og markar það breytingu á aðstöðu og fyrirkomulagi skólamötuneytisins, þar sem matargerð fyrir nemendur grunnskólans fer nú fram í skólanum sjálfum.