Í dag hefst vinna við að fjarlægja gervigrasið og dekkjakurlið af sparkvellinum við Grunnskóla Grundarfjarðar og verður í kjölfarið lagt nýtt gras án svarta gúmmíkurlsins. Samþykkt var á fundi bæjarstjórnar í febrúar að gervigrasinu yrði skipt út til að losna við svart gúmmí af leiksvæðum barna.

 

Það er fyrirtækið Altis sem sér um lagningu nýja gervigrassins sem heitir Next Generation en það er lagt ofan á mjúkt undirlag. Reiknað er með að vinnunni við sparkvöllinn ljúki nú um helgina.