Ljósmynd: Tómas Freyr Kristjánsson
Ljósmynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Heimir Jónsson ráðinn verkstjóri áhaldahúss Grundarfjarðarbæjar

Ráðningarferli vegna starfs verkstjóra áhaldahúss Grundarfjarðarbæjar lauk í septembermánuði og var í kjölfarið gengið frá ráðningu Heimis Jónssonar í starfið og hóf hann störf 5. október sl.

Ábyrgð verkstjóra áhaldahúss felst í að leiða og skipuleggja daglegt starf áhaldahúss og þjónustumiðstöðvar Grundarfjarðarbæjar. Verkstjóri ber ábyrgð á verkstjórn starfsfólks, skipulagningu og eftirfylgni verkefna, umsjón með tækjum og búnaði og framkvæmd viðhalds og þjónustu á innviðum og svæðum sveitarfélagsins. Jafnframt gegnir verkstjóri mikilvægu hlutverki í samskiptum við íbúa, verktaka og aðra samstarfsaðila og tekur þátt í áætlanagerð og þróun starfseminnar.
 

Heimir Jónsson hefur reynslu og þekkingu sem nýtist vel í fjölbreyttum verkefnum áhaldahússins.

Grundarfjarðarbær býður Heimi velkominn til starfa og væntir góðs af framlagi hans til þjónustu og verkefna sveitarfélagsins.

 

Sigurbjörn Hansson ráðinn umsjónarmaður fasteigna hjá Grundarfjarðarbæ

Ráðningarferli vegna starfs umsjónarmanns fasteigna hjá Grundarfjarðarbæ er nú lokið og hefur verið gengið frá ráðningu Sigurbjörns Hanssonar í starfið og mun hann hefja störf fimmtudaginn 22. október.
 
Umsjónarmaður fasteigna ber ábyrgð á daglegu eftirliti, umsjón og viðhaldi fasteigna sveitarfélagsins auk þess að sinna fjölbreyttum verkefnum sem tengjast rekstri þeirra og þróun. Starfið gegnir mikilvægu hlutverki við að tryggja góða umgjörð um þá þjónustu og starfsemi sem fram fer í fasteignum bæjarins.
 
Sigurbjörn Hansson hefur víðtæka reynslu sem nýtist vel í starfinu og er það mat Grundarfjarðarbæjar að þekking hans og reynsla muni styrkja rekstur og umsjón fasteigna sveitarfélagsins til framtíðar.
 
Grundarfjarðarbær býður Sigurbjörn Hansson velkominn til starfa og óskar honum velfarnaðar í nýju hlutverki.