Vinnumálastofnun/Velferðarráðuneyti auglýsir styrki til atvinnumála kvenna vegna ársins 2011 lausa til umsóknar. Skilyrði er að verkefnið/hugmyndin falli að eftirfarandi skilyrðum:

  • verkefnið sé í eigu konu/kvenna og stjórnað af konu
  • verkefnið feli í sér nýnæmi eða nýsköpun
  • verkefnið feli í sér atvinnusköpun til frambúðar
  • viðskiptahugmynd sé vel útfærð
  • veittir eru styrkir til gerðar viðskiptaáætlunar, vegna markaðssetningar og gerðar markaðsáætlunar, þróunar vöru eða þjónustu, hönnunar og efniskostnaðar.
  • ennfremur get konur sem hafa fullmótaða viðskiptaáætlun og hafa hug á því að stofna fyrirtæki á næstunni eða hafa stofnað fyrirtæki og ekki hafið rekstur, sótt um styrk til að koma henni í framkvæmd.