- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Opið hús fyrir vinnslutillögu aðalskipulags fyrir Háubakka í Grundarfirði.
Miðvikudaginn 25. febrúar verður opið hús í Ráðhúsi Grundarfjarðar milli kl. 13:00 og 14:00 þar sem vinnslutillaga að aðalskipulagsbreytingu fyrir Háubakka verður til sýnis og hún kynnt.
Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar samþykkti 12. febrúar sl. að auglýsa vinnslutillögu aðalskipulagsbreytingar fyrir Háubakka í samræmi við 30. gr. skipulagslaga. Samhliða er unnið að deiliskipulagi fyrir svæðið. Með skipulagsgerðinni verða til einbýlishúsalóðir vestast í Grundarfirði.
Tillagan er auglýst frá 18. febrúar - 2. mars 2026. Ábendingar og athugasemdir skulu berast í síðasta lagi 2. mars í gegnum Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar. Tillagan er til sýnis í Ráðhúsi Grundarfjarðar, í Sögumiðstöðinni Grundargötu 35 og á heimasíðu bæjarins.
Íbúar og aðrir hagsmunaaðilar eru hvattir til að kíkja við á opnu húsi hvenær sem er á þessum tíma.
Skipulagsgögn má finna hér.
Sigurður Valur Ásbjarnarson, skipulagsfulltrúi Grundarfjarðarbæjar