- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Opið málþing um LIFE Icewater verkefnið hjá Reykjavíkurborg
Mikill áhugi var á opnu málþingi um framgang LIFE Icewater verkefnisins sem haldið var í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur miðvikudaginn 23. september. Reykjavíkurborg tekur þátt í Icewater verkefninu með því að bæta vatnsgæði í Vatnsmýrinni og Tjörninni og innleiðingu blágrænna lausna.
Á málþinginu var fjallað vítt og breytt um bætt vatnsgæði og vistkerfi í Tjörninni og Vatnsmýrinni, flóðavarnir í Kvosinni og almenna innleiðingu blágrænna ofanvatnslausna. Ýmsir aðilar tengdir verkefninu frá Reykjavíkurborg, Veitum, Umhverfis- og orkustofnun, Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur og víðar kynntu stöðu mála hjá sér.
Grundarfjarðarbær á sérstakan sess í þessu viðamikla samstarfi og fór Nanna Vilborg Harðardóttir, verkefnastjóri skipulags-, umhverfismála og LIFE-Icewater, fyrir hönd Grundarfjarðarbæjar á málþingið. Grundarfjörður hefur vakið mikla athygli sem fyrsta sveitarfélagið á Íslandi sem setur sér skýra stefnu um innleiðingu blágrænna ofanvatnslausna í heilu þéttbýli.
Sérstakt myndband var sýnt á málþinginu um blágrænar ofanvatnslausnir í Grundarfirði, sem vakti góðar viðtökur og var þar hægt að sjá þær framkvæmdir og áskoranir sem Grundarfjarðarbær vinnur að. Áhugasamir geta nálgast myndband um Grundarfjörð hér.
Í framhaldi flutti Halldóra Hreggviðsdóttir, skipulagsráðgjafi hjá ALTA, erindi um mikilvægi blágrænna lausna, en ALTA hefur unnið náið með Grundarfjarðarbæ að skipulagi og innleiðingu lausnanna.
Nýtt nafn á verkefninu var kynnt og hefur LIFE Icewater fengið íslenskt heiti. Í lok ágúst var óskað eftir tillögum að íslensku heiti fyrir verkefnið og alls bárust 68 tillögur að 58 mismunandi heitum. Vatnalíf varð fyrir valinu.
Vatnalíf verður tekið upp sem íslenskt heiti verkefnisins á næstu vikum og mánuðum og mun því smám saman fara að sjást í miðlun verkefnisins. Hægt er að fylgjast með Vatnalífs-heiminum á facebook síðu verkefnisins hér.
Málþingið sýndi vel hversu dýrmætt þetta samstarf er fyrir öll þátttökusveitarfélögin og stofnanirnar. Með þátttöku í LIFE Icewater verkefninu heldur Grundarfjarðarbær áfram að vera í fararbroddi og nýta nýjustu þekkingu til að tryggja sjálfbæra vatnsstjórnun og fegra umhverfið.