Sumardaginn fyrsta 22. apríl á milli kl 14 og 16 býður Hesteigendafélag Grundarfjarðar bæjarbúum í heimsókn í hesthúsin. Þar gefst þeim kostur á að skoða það sem þar fer fram, skoða dýrin sem eru í hesthúsunum  og síðan verður börnum  boðið á hestbak. Í Fákaseli verður Vöfflukaffi  til sölu á meðan húsin eru opin.

Verið öll velkomin.

Stjórnin