Grundarfjarðarhöfn býður til samtals um móttöku skemmtiferðaskipa sumarið 2026. 

 

Skemmtiferðaskipasumarið 2026 fer brátt að hefjast og fyrsta skip er væntanlegt til hafnar sunnudaginn 17. maí. Grundarfjarðarhöfn býður til samtals um móttöku skemmtiferðaskipa þar sem farið verður yfir sumarið, skipulag þess og breytingar. Síðan verður opið fyrir spurningar og umræður. 

Fundurinn verður haldinn í Samkomuhúsi Grundarfjarðar, Sólvöllum 3, þriðjudaginn 28. apríl frá kl. 17:00-19:00. 

Markmið fundarins er að stilla saman strengi, miðla upplýsingum, efla samtal og sameiginlega sýn varðandi þjónustu gesta í Grundarfirði. 

Dagskrá:

  • Komur skemmtiferðaskipa sumarið 2026; farið yfir skipadagatal og skipulag móttöku á árinu. Hverjar eru breytingar frá síðasta ári? Innviðir, aðstaða og þjónusta. 
  • Opið samtal: umræður, fyrirspurnir, hugmyndir. Hverjir verða með hvaða þjónustu í ár - hvað segja þjónustuaðilar?

Stjórn umræðu verður í höndum forstöðumanns menningar- og markaðsmála. 

Þjónustuaðilar og áhugafólk um ferðamál hvött til að taka þátt!