Í gær var opnuð myndlistarsýning leikskólabarna á Kaffi 59. Það var fullt út að dyrum við opnunina. Fram kom við opnunina að leikskólabörn eru fjölhæfir listamenn bæði í söng og myndlist. Þeir sem líta inn á sýninguna komast að raun um að fjölbreytni er mikil þó ekki sé fylgt formlega neinum þekktum stefnum í listsköpuninni.

Sýningin er sölusýning og verður opin næstu daga.

Leikskólabörn og kennarar fyrir utan Kaffi 59