Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar fylgist grannt með þróun í efnahagsmálum Íslands dag frá degi.  Þær hamfarir í peningamálum sem dunið hafa yfir koma illa við alla, þar með talið sveitarfélög.  Bæjarstjórnin mun leggja allt kapp á að tryggja og viðhalda áfram grunnþjónustu bæjarins og það að óþægindi íbúa verði í lágmarki vegna þeirra þrenginga sem kunna að vera í augsýn.  Bæjarstjórnin vonar og óskar þess að íbúar haldi rósemi sinni og láti ekki bugast við þær óþægilegu fréttir sem dynja yfir þessa daga.  Bæjarstjórnin bendir á, að íbúar geta leitað til bæjarskrifstofunnar um viðtöl vegna erfiðleika og einnig er mögulegt að leita til félagsþjónustu Snæfellinga um ráðgjöf og aðstoð.  Bæjarfulltrúar eru einnig reiðubúnir til þess að eiga fundi með íbúum um þessi mál og önnur sem varða heill þeirra og byggðarlagsins.

 

Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar færir íbúum bæjarins og Snæfellingum öllum bestu óskir um að þetta efnahagslega fárviðri valdi ekki skaða og miklum erfiðleikum.

 

 

Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar.