Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson
Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Páskarnir ganga nú í garð og verður ýmislegt um að vera í Grundarfirði og nágrenni. Íbúar og gestir eru hvattir til að skoða upplýsingar um opnanir stofnana og fyrirtækja. 

Það hefur snjóað töluvert undanfarna daga og Skíðasvæði Snæfellsness hefur verið með opið þegar veður og færi hefur gefist. Hægt er að fylgjast með opnunartíma og öðrum fréttum af skíðasvæðinu á Facebook-síðunni Skíðasvæði Snæfellsness.

Tilvalið er að taka rölt í bænum og njóta útiveru, eftir því sem aðstæður leyfa. Það getur verið forvitnilegt að skoða hvernig listaverk bæjarins taka sig út í vetrarbúningi - ef þau sýna sig!  

Sundlaug Grundarfjarðar er því miður lokuð yfir páskana, þar sem frídagar grunnskólans og annarra verða nýttir til að fara í viðhaldsvinnu í búningsklefum. Stefnt er að því að opna aftur þriðjudaginn 7. apríl. Hægt er að fylgjast með sundlauginni á Facebooksíðunni Sundlaug Grundarfjarðar.

Klifurfell er opið alla páskana, þar ættu allir að geta fundið sér eitthvað við hæfi. Í Klifurfelli er klifurveggur, 160fm dýnugólf og þrautabraut. Hægt er að nálgast aðgangskóða í síma: 8408045.

Hér er að neðan er hægt að sjá opnunartíma og viðburði yfir páskana í Grundarfirði og nágrenni.

Fréttin verður uppfærð eftir því sem upplýsingar berast. 

Miðvikudagurinn 1. apríl
08:00-21:00 - Opið í Líkamsræktinni
10:00-16:30 - Opið í Kaffibrennslunni Valeríu
12:00-20:00 - Opið á Kaffi 59
14:00-16:30 - Molakaffi í Sögumiðstöðinni, gæðasamverustund - opið öllum
14:00-17:00 - Opið á Bókasafni Grundarfjarðar
14:00-17:00 - Gramsað í Gömlum bókum á Hraunhálsi í Helgafellssveit 
16:30-18:00 - Opið á gámastöðinni (ath. miðvikudag í stað fimmtudags, sem er Skírdagur)
19:30-21:30 - Frjáls lestrarstund í Sögumiðstöðinni, Grundargötu 35, á vegum Let's come together

Fimmtudagurinn 2. apríl - Skírdagur
08:00-18:00 - Opið í Líkamsræktinni
10:00-16:30 - Opið í Kaffibrennslunni Valeríu
11:00 - Fermingarmessa í Grundarfjarðarkirkju 
12:00-17:00 - Opið í Kjörbúðinni 
12:00- 20:00 - Opið á Kaffi 59
14:00-17:00 - Gramsað í Gömlum bókum á Hraunhálsi í Helgafellssveit 
18:00-20:00 - Opið á Mæstro
18:00 - Hestafimleikar á Snæfellsnesi. Fimleikaknapar í hestaleikfimihópnum Vetrarsól sýna listir fyrir 2. mót í Snæfellingamótaröðinni. Reiðhöllin í Stykkishólmi.
20:00-22:00 - Prjónahittingur með aðstoð í textílstofu Grunnskóla Grundarfjarðar, við Borgarbraut 

Föstudagurinn 3. apríl - Föstudagurinn langi
10:00-16:30 - Opið í Kaffibrennslunni Valeríu
10:00-18:00 - Opið í Líkamsræktinni
12:00-14:00 og 18:00-20:00 - Opið á Mæstro
12:00-21:00 - Opið á Kaffi 59
14:00 - Píslarsagan lesin í Setbergskirkju
14:00-17:00 - Gramsað í Gömlum bókum á Hraunhálsi í Helgafellssveit 

Laugardagurinn 4. apríl
10:00-16:30 - Opið í Kaffibrennslunni Valeríu
10:00-17:00 - Opið í Kjörbúðinni
10:00-18:00 - Opið í Líkamsræktinni
12:00-14:00 - Opið á gámastöðinni
12:00-14:00 og 18:00-20:00 - Opið á Mæstro
12:00-21:00 - Opið á Kaffi 59
14:00-17:00 - Gramsað í Gömlum bókum á Hraunhálsi í Helgafellssveit 

Sunnudagurinn 5. apríl - Páskadagur
09:00 - Hátíðarmessa í Grundarfjarðarkirkju. Hátíðarmorgunverður í safnaðarheimili eftir messu. 
10:00-16:30 - Opið í Kaffibrennslunni Valeríu
12:00-14:00 - Opið á Mæstro
12:00-20:00 - Opið á Kaffi 59
14:00-17:00 - Gramsað í Gömlum bókum á Hraunhálsi í Helgafellssveit 

Mánudagurinn 6. apríl - Annar í páskum 
10:00 - Páskablakmót í Stykkishólmi
10:00-16:30 - Opið í Kaffibrennslunni Valeríu
10:00-18:00 - Opið í Líkamsræktinni
12:00-14:00 - Opið á Mæstro
12:00-17:00 - Opið í Kjörbúðinni
12:00-20:00 - Opið á Kaffi 59
14:00-17:00 - Gramsað í Gömlum bókum á Hraunhálsi í Helgafellssveit 

Alla dagana, önnur þjónusta og viðburðir
Almenningssalerni (WC) á Grundarfjarðarhöfn 
Tjaldsvæðið í Grundarfirði er opið allan ársins hring