Í kvöld fer fram fimmtánda keppnin í kráarvisku. Það er Meistaraflokkur karla sem stendur fyrir þessu og rennur allur ágóði af keppninni óskertur til þeirra. 

Þemað í kvöld er almenn þekking og því geta allir tekið þátt.  

Keppnin hefst kl 21:00 og fer fram á Kaffi 59 að venju. Það kostar aðeins 500 kr á mann og má búast við spennandi kvöldi í kvöld.

Við hvetjum alla til að mæta, skemmta sér og styrkja strákana okkar í leiðinni.

Meistaraflokksráð.