Signý Gunnarsdóttir bæjarfulltrúi, Ágústa Einarsdóttir bæjarfulltrúi, Jósef Kjartansson, bæjarfulltr…
Signý Gunnarsdóttir bæjarfulltrúi, Ágústa Einarsdóttir bæjarfulltrúi, Jósef Kjartansson, bæjarfulltrúi, Birkir Jón Jónsson bæjarstjóri Grundarfjarðarbæjar, Jón Skafti Gestsson sérfræðingur umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, Fannar Þór Þorfinsson forseti bæjarstjórnar, Bjarni Sigurbjörnsson bæjarfulltrúi, Aðalsteinn Jósepsson formaður bæjarráðs og Þuríður Gía Jóhannesdóttir formaður skipulags- og umhverfisnefndar

 

Ráðherra í heimsókn í Grundarfirði

 

Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra kom í heimsókn til Grundarfjarðar fimmtudaginn 3. september.

Heimsóknin hófst á fundi með bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar. Birkir Jón, bæjarstjóri, fór þar yfir tækifæri Grundarfjarðar t.d. í ferðaþjónustu, á hafnarsvæðinu og uppbyggingu atvinnu- og íbúðarhúsnæðis. Í máli hans kom fram að Grundarfjörður hafi allar forsendur til að vaxa og dafna en þá sé nauðsynlegt að innviðirnir séu ekki farartálmi á þeirri vegferð. Rætt var um leit að heitu vatni, styrkingu raforkukerfisins á Snæfellsnesi og sýndi ráðherra málflutningi fulltrúa bæjarins mikinn skilning.

Næst var haldið niður á höfn þar sem Hafsteinn Garðarson hafnarstjóri tók á móti ráðherra. Hafnarstjóri sagði frá höfninni og þeirri aðstöðu sem höfnin bíður upp á bæði til löndunar og móttöku skemmtiferðaskipa. Var einnig snert á því að skemmtiferðaskip eru í auknum mæli að sækjast eftir því að geta tengt sig við rafmagn þegar það er í höfn og þurfi því ekki að hafa vélarnar í gangi á meðan.

Að lokinni heimsókn á höfninni var haldið í G.Run þar sem Arnar Kristjánsson framkvæmdarstjóri tók á móti ráðherra. Arnar sagði frá fyrirtækinu og því ferli sem fer fram í frystihúsinu, allt frá því að fiskurinn kemur í vinnsluna og þangað til það er búið að frysta hann eða lausfrysta. Rætt var um orkuþörf þess að reka fiskvinnslu, hvar varmi glatast og hvort það séu til skilvirkari leiðir.

Leiðin lá svo upp í Grunnskóla þar sem Sigurður Gísli Guðjónsson skólastjóri tók á móti ráðherra. Sigurður Gísli sagði frá almennri starfsemi í skólanum ásamt því að fara yfir orkuskiptin í grunnskólanum og íþróttahúsinu þar sem farið var úr því að kynda með olíu yfir í það að nota jarðvarma.

Að lokum fékk ráðherra kynningu á blágrænum ofanvatnslausnum frá Nönnu Vilborgu Harðardóttur verkefnisstjóra skipulags- og umhverfismála. Hún fór yfir það hvernig Grundarfjörður er að leysa fráveituvandamál með því að innleiða blágrænar ofanvatnslausnir. Nanna fór síðan með ráðherra í göngutúr niður Hrannarstíginn og sýndi honum þau verkefni sem eru í gangi tengt blágrænum ofanvatnslausnum.

Ráðherra fór síðan í hádegismat á Harbour Kaffi ásamt bæjarstjórum Snæfellsness þar sem rætt var um sameiginleg hagsmunamál sveitarfélaganna og var þar flutningskerfi raforku sérstaklega tekið fyrir.