Föstudagur 2. mars 2007
Fiskistofa búin að ráða útibússtjóra

Sigurður Arnar Þórarinsson hefur verið ráðinn nýr útibússtjóri væntanlegs útibús Fiskistofu í Stykkishólmi.  Sigurður hefur verið skipstjóri á Arnari SH 157 úr Stykkishólmi undanfarin ár. 
Ekki hefur verið gengið frá ráðningu í tvö störf veiðieftirlitsmanna.

Frétt tekin af heimasíðu Stykkishólmsbæjar.