- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Ræstingastörf – þrjú störf
Grundarfjarðarbær óskar eftir að ráða starfsfólk til að sinna ræstingu í þremur af húseignum bæjarins. Um er að ræða 26 klst. á mánuði í einni eigninni, þar sem ræst er tvisvar í viku, 20 klst. á mánuði í annarri, einnig ræst tvisvar í viku og 8 klst. á mánuði í þeirri þriðju, þar sem ræst er einu sinni í viku. Vinnutími er sveigjanlegur. Sami einstaklingur getur sinnt öllum störfunum.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar eru veittar á bæjarskrifstofu í síma 430 8500 eða á netfangi grundarfjordur@grundarfjordur.is
Umsóknarfrestur er til 15. nóvember nk.
Ráðið er í störfin frá 1. janúar 2026 eða skv. samkomulagi.