Grundarfjarðarbær óskar eftir að ráða sem fyrst starfsmann til að sinna ræstingu á einni af húseignum bæjarins. Um er að ræða ca. 4 klst. á viku. Vinnutími er sveigjanlegur.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Dala- og Snæfellsness (SDS).

Nánari upplýsingar eru veittar á bæjarskrifstofu í síma 430 8500 eða á netfangi grundarfjordur@grundarfjordur.is

Umsóknarfrestur er til 7. október nk.