Grundarfjarðarbær óskar eftir að ráða sem fyrst starfsmenn til að sinna ræstingu á tveimur af húseignum bæjarins. Um er að ræða 20 klst. á mánuði í annarri eigninni en 26 klst. á mánuði í hinni. Vinnutími er sveigjanlegur. Sami einstaklingur getur sinnt báðum störfunum.

 

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Dala- og Snæfellsness (SDS).

 

Nánari upplýsingar eru veittar á bæjarskrifstofu í síma 430 8500 eða á netfangi grundarfjordur@grundarfjordur.is

Umsóknarfrestur er til 30. nóvember nk.