Grundarfjarðarbær óskar eftir að ráða sem fyrst starfsmenn til að sinna ræstingu á þremur af húseignum bæjarins. Um er að ræða 26 klst. á mánuði í einni eigninni, 12 klst. á mánuði í annarri og 6 klst. á mánuði í þeirri þriðju. Vinnutími er sveigjanlegur. Sami einstaklingur getur sinnt öllum störfunum.

 

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Dala- og Snæfellsness (SDS).

 

Nánari upplýsingar eru veittar á bæjarskrifstofu í síma 430 8500 eða á netfangi grundarfjordur@grundarfjordur.is

Umsóknarfrestur er til 10. apríl nk.