Ef við þurfum að vera í sóttkví, skv. ákvörðun heilbrigðisyfirvalda, þá ber okkur að láta vita af því á okkar heilsugæslustöð.

Nú getum við einnig skráð upplýsingar og tilkynnt um veru okkar í sóttkví inni á vefnum heilsuvera.is og fengið vottorð þar að lútandi. Vottorðin eru án endurgjalds. Skráning í heilsuveru krefst þess að notandi sé með rafræn skilríki.

Þau sem hafa ekki rafræn skilríki og geta ekki nýtt sér heilsuveru, hafa samband við heilsugæslustöðina sína. Heilsugæslustöðin kemur upplýsingum um sóttkví til sóttvarnalækna HVE, þar sem haldið er utan um fjöldann. 

Til að fá staðfestingu á sóttkví geta þau sem þess þurfa með sent tölvupóst á netfangið mottaka@landlaeknir.is og skrá í efnislínu: Staðfesting á sóttkví.

Hér að neðan má sjá hvernig skráningarformið lítur út á vefnum heilsuvera.is sem allir með rafræn skilríki geta nýtt sér til að skrá sig í sóttkví og sækja sér vottorð þess efnis.