- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Rarik auglýsir rafmagnsleysi aðfaranótt föstudagsins 29. maí
Tilkynning frá Rarik:
Aðfaranótt föstudagsins 29. maí n.k. hyggst Landsnet fara í nauðsynlegar viðhaldsaðgerðir í tengivirki við sameiginlega aðveitustöð Landsnets og Rarik í Vatnshömrum. Af þessum sökum mun verða rafmagnslaust á stóru svæði í u.þ.b. 2 klst., eða frá kl. 00:10-02:10 þessa nótt. Svæðið sem um ræðir er allt Snæfellsnes og Borgarfjörður, þ.m.t. Stykkishólmur, Grundarfjörður, Ólafsvík, Hellissandur, Vegamót og Borgarnes. Rarik hvetur viðskiptavini sína á svæðinu til að gera viðeigandi ráðstafanir sé þess þörf.
Á eftirfarandi hlekk er að finna góð ráð, m.a. varðandi það hvernig draga má úr líkum á tjóni vegna rafmagnsleysis: https://www.rarik.is/spurt-og-svarad/spurt-og-svarad/til-ad-draga-ur-likum-a-tjoni-fra-rafmagni