Vinna við verkefnið „Föt sem framlag“ ungbarnapakkana 0 – 12 mánaða, til Hvíta- Rússlands heldur áfram fimmtudaginn 05.09.2013. kl 13:00, í salnum við bókasafnið á Borgarbraut.

 

Allir velkomnir að kíkja til okkar eða leggja hönd á plóg við þetta verkefni.     

Okkur vantar sérstaklega efni í teppi, (gamla náttsloppa, stórar fleece peysur) eða annað sem breyta má, falleg sængurver og handklæði. Einnig eru vel þeginn öll föt á ungbörn, samfellur, peysur, húfur, buxur, þykka sokka.

Munið eftir verkefni Rauðakrossins „Föt sem framlag“  þegar hafist verður handa við vorhreingerningarnar, koma má með efnin/fötin á fimmtudaginn eða á Markaðinn til Steinunnar sem mun veita þeim viðtöku.