Hvernig er hægt að vera ríkisfangslaus? Hvað eru landtöku-byggðir?

Og hvernig er að búa í tjaldi? Sigríður Víðis Jónsdóttir fjallar um málefni Palestínu, stofnun Ísraelsríkis, vegatálma á Vesturbakkanum og sýnir myndir af vettvangi.

Hún svarar spurningum og les upp úr bók sinni Ríkisfang: Ekkert, sem fjallar um palestínsku flóttakonurnar á Akranesi sem fengu hæli á Íslandi haustið 2008. Sigríður er fædd á Akranesi 1979.

Hún bjó á Skaganum þangað til um tvítugt þegar hún flutti til Reykja-víkur og lauk BA-prófi í heimspeki með mannfræði sem aukagrein. Hún tók síðan meistarapróf í þróunar- og átakafræðum frá University of East Anglia í Bretlandi. Frá árinu 2000 hefur Sigríður skrifað fréttaskýringar, viðtöl, pistla og ferðasögur – ýmist meðfram námi, í lausamennsku eða í fullu starfi sem blaðamaður. Fyrirlesturinn hefst klukkan 16:00 á laugardeginum í Sögumiðstöðinni. Enginn aðgangseyrir