Mynd - Bryndís Guðmundsdóttir
Mynd - Bryndís Guðmundsdóttir

Rökkurdagar 2021

 

Nú siglum við inn í haustmánuðina, eftir harðar, fróðlegar, bjartar og áhrifaríkar fyrri árstíðir. Það húmar senn að kveldi og með hverjum deginum verður meira rökkur á kvöldin. Kertaljósin ylja okkur í myrkrinu og við hlökkum til komandi tíma.

 

Menningarhátíð Grundarfjarðar, Rökkurdagar 2021, verður haldin vikuna 25. - 31. október nk. 

Sem fyrr þá hvetur menningarnefnd bæjarbúa, félagasamtök og hagsmunaaðila eindregið til að koma með tillögur að efni í dagskrá hátíðarinnar í ár.

Vinsamlega sendið tillögur og/eða hugmyndir á netfangið thuri(hjá)grundarfjordur.is

Frestur til að skila inn tillögum er til og með föstudeginum 8. október nk.

Menningarnefnd Grundarfjarðarbæjar