- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Menningarhátíðin Rökkurdagar hefst í Grundarfirði laugardaginn 24. október og stendur til 4. nóvember.
Rökkurdögum var þjófstartað í ár þegar blásið var til tónlistarhátíðarinnar Krakka Rökkur Rokk þar sem ungir tónlistarmenn fengu að láta ljós sitt skína á hinum ýmsu stöðum vítt og breitt um bæinn. Nú er komið að því að enda þá með stæl.
Að venju verður fjölbreytt dagskrá í boði og ættu flest að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Kvikmyndir, sögur, sköpun og samvera koma þar meðal annars við sögu og verður dagskrá fyrir bæði börn og fullorðna.
Hrekkjavaka í Grundó verður haldin í tíunda sinn í ár og hafa skipuleggjendur hrekkjavökunnar sett saman frábæra dagskrá. Hrekkjavakan er einnig partur af Barnamenningarhátíð Vesturlands, Barnó - Best Mest Vest, sem haldin er í annað sinn í ár. Nánari upplýsingar um viðburði hrekkjavökunnar má sjá á Facebook síðu þeirra hér.
Dagskrá Rökkurdaga má sjá hér að neðan og hvetjum við íbúa og gesti til að taka þátt og njóta þess sem í boði er.
Dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar.