Í ár verða Rökkurdagar haldnir 4. - 7. nóvember. Dagskráin er farin að taka á sig mynd þó er enn nóg rými fyrir aðila sem vilja gera eitthvað skemmtilegt. Þeir sem vilja taka þátt geta haft samband við markaðsfulltrúa á skrifstofu Grundarfjarðarbæjar. Bent er á að til að allir atburðir komist inn á dagskrá skal tilkynna þátttöku fimmtudaginn 25. október í síðasta lagi.

Menningar- og tómstundanefnd