Það var Salbjörg Nóadóttir sem kom, sá og sigraði í Ljósmyndasamkeppni Grundarfjarðarbæjar þetta árið en hún hlaut bæði fyrstu og önnur verðlaun í keppninni. Sigríður Diljá Guðmundsdóttir hafnaði í þriðja sæti.

 

 

 

Alls bárust 25 myndir í keppnina frá átta þátttakendum en samkvæmt reglum keppninnar má má hver og einn senda allt að fimm myndir inn í keppnina. Það var því úr vöndu að ráða fyrir dómnefndina, sem var skipuð þeim Berglindi Jósepsdóttur, Tómasi Frey Kristjánssyni og Unni Birnu Þórhallsdóttur. Nefndinni er hér með þakkað fyrir sín góðu störf.

Salbjörgu og Sigríði Diljá er óskað innilega til hamingju með árangurinn!