Samkeppni um rafrænt samfélag er lokið. Tvö verkefni hafa verið valin til þátttöku í þróunarverkefni, sem mun standa í þrjú ár. Að þessum verkefnum standa annars vegar sveitarfélögin Árborg, Hveragerði og Ölfus, undir verkefnaheitinu "Sunnan 3", og hins vegar sveitarfélögin Aðaldælahreppur, Húsavíkurbær og Þingeyjasveit, undir verkefnaheitinu "Virkjum alla."

 

Tvö önnur verkefni voru í samkeppninni; ,,Tæknibærinn – Grundarfjörður” og verkefni frá Snæfellsbæ.