Vesturland
Samráðsfundur um stöðu samgöngumála

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi bjóða til rafræns samráðsfundar um stöðu samgöngumála á Vesturlandi miðvikudaginn 3. mars kl. 15:00-17:00. Á fundinum verður fjallað um samgöngumál í landshlutanum, helstu áskoranir og tækifæri til framfara. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá með erindum og umræðum í minni hópum.
Fundurinn er öllum opinn en gestir eru beðnir um að skrá þátttöku á skráningarsíðu fundarins. Allir sem skrá sig fá hlekk á veffundinn.
Fundurinn er hluti af fundaröð um allt land í tilefni af undirbúningi grænbókar um stöðu samgöngumála. Sjá nánar á vef um grænbók um samgöngumál.


Dagskrá

15:00–16:00

Erindi

Lilja B. Ágústsdóttir, formaður SSV og forseti sveitarstjórnar í Borgarbyggð
Gísli Gíslason, fv. hafnarstjóri Faxaflóahafna, Akranesi
Sigríður Huld Skúladóttir, sveitarstjórnarfulltrúi Dalabyggð
Jakob Björgvin Jakobsson, bæjarstjóri í Stykkishólmi

16:00–17:00

Umræður

Fundargestum er skipt upp í umræðuhópa sem fjalla um einstök viðfangsefni.
Hver hópur kynnir niðurstöður sínar stuttlega í lok fundar.

Fundarstjóri er Gissur Jónsson, varaformaður samgönguráðs

Viðburður á Facebook