Strákarnir fóru í Kópavoginn á föstudag til að spila á móti efsta liði riðilsins og voru ekki allt of sigurvissir.  

Leikurinn hófst með því að Blikarnir skora um miðjan fyrri hálfleik en Heimir jafnar með góðu marki örfáum mínútum seinna. Ingólfur skorar svo annað mark okkar og staðan því orðin 2-1 fyrir okkur, en dómarinn dæmdi á okkur víti sem Viktor varði glæsilega en Blikarnir fylgdu fast á eftir spyrnunni og skoruðu.Þegar 8 mínútur voru eftir var Ingólfur felldur inn í teig og fengum við vítaspyrnu sem Brynjar skoraði úr og lokatölur því 3-2 fyrir okkar menn. Allur hópurinn átti góðan leik og sýndu að þeir eru til alls líklegir þegar hugarfarið og baráttan eru til staðar.