Símatími skipulagsfulltrúa

Grundarfjarðarbær vekur athygli á því að símatími skipulagsfulltrúa er á þriðjudögum kl. 10:00–12:00 í síma 4308512. 

Á þeim tíma gefst íbúum og öðrum hagsmunaaðilum kostur á að hafa samband við skipulagsfulltrúa vegna fyrirspurna og mála sem tengjast skipulagsmálum.

Við hvetjum þau sem eiga erindi við skipulagsfulltrúa til að nýta sér auglýstan símatíma, utan símatíma er hægt að senda póst á skipulag@grundarfjordur.is

Skipulagsfulltrúi Grundarfjarðarbæjar er Sigurbjörg Ósk Áskelsdóttir.