Dvalar- og hjúkrunarheimilið Fellaskjól óskar eftir duglegu fólki til þess að aðstoða við ýmis tilfallandi verkefni fyrir heimilið.  Verkefnin eru bæði innandyra og utandyra, s.s. málningarvinna, garðvinna o.s.frv.
Vinnan er ólaunuð, en við getum lofað ykkur góðum kaffisopa.  Þeir sem vilja leggja góðu málefni lið eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við starfsfólk Fellaskjóls í síma 4386677