Mánudaginn 8. júlí nk. mun skemmtiferðaskipið Ocean Princess liggja við akkeri við Grundarfjarðarhöfn. Farþegar skipsins eru tæplega 700 talsins auk um 350 manna áhafnar. Það verða því um 1000 manns sem sækja okkur Grundfirðinga heim. Skipið kemur um kl. 7:00 og fer kl. 18:00.

Við höfum fengið til liðs við okkur fjórar ungar stúlkur sem ætla að spila og syngja á bryggjunni fyrir farþega skipsins um kl. 8:30. Auk þess verða víkingarnir á staðnum.