Góðir Grundfirðingar

Verið er að kanna möguleika ýmiss konar starfi í sumar. Ef næg þátttaka fæst getum við reiknað með að þetta verði að veruleika.

Það sem um ræðir:

1. Smíðavöllur fyrir börn á aldrinum 8-13 ára.

2. Skólagarðar fyrir börn á aldrinum 8-13 ára.

3. Matjurtagarður fyrir þá sem vilja rækta sitt eigið grænmeti.

Þeir sem hafa áhuga á einhverju ofantöldu látið vita á bæjarskrifstofunni fyrir helgi.