Mikil aðsókn hefur verið í lyftuna undanfarna daga
Lyftan verður opin frá kl 15-19 á meðan nægur snjór er. Fleira fólk vantar til þess að vinna við lyftuna. Áhugasamir hafi samband í síma 863-0185 eða á netfangið umfg@grundo.is.

Fábær mæting var í lyftuna um helgina og kom fólk langt að til þess að fara á skíði hjá okkur. Gaman var líka að sjá hversu margir mættu með alla fjölskylduna á skíði. Þarna voru börn á skíðum,snjóbrettum,snjóþotum og í barnavögnum. Sjá á meðfylgjandi myndum.

 

 

Þórey að gefa skíðafólkinu nesti og heitt súkkulaði

Gestir bíða spenntir í röðinni eftir að komast í lyftuna!

Sveinn Pétur Þorsteinsson í lyftunni